Hakon

Hákon er nettur sófi sem hægt er að fá í þeirri stærð sem að hentar hverju rými fyrir sig. Hægt er að velja úr fjölbreyttu úrvali áklæða – bæði tau og leður.

Sófarnir frá Zenus er íslensk gæðaframleiðsla þar sem einfaldleikinn og hagnýt sjónarmið eru höfð að leiðarljósi. Útlitshönnunin er stílhrein og tekur sérstaklega mið af notkunargildi og þægindum sófans. Grindin er einstaklega sterk og allur frágangur er mjög vandaður til að standast ýtrustu kröfur um góða endingu.