Um okkur
Zenus er framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem er byggt á gömlum grunni og leggjum við áherslu á að framleiða og bjóða upp á vandaðar vörur og framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á gott úrval gluggatjalda úr ýmsum efnum, fyrir allar gerðir glugga. Hvert gluggatjald er vandlega sérsmíðað af fagfólki til að henta nákvæmlega þínum þörfum og þínu rými. Auk gluggatjalda sérsmíðum við sófa og stóla og sjáum um endurbólstrun alls kyns verkefna. Dýrmæt reynsla og þekking starfsmanna hefur safnast saman á mörgum áratugum sem endurspeglast í traustum vinnubrögðum og faglegri þjónustu.

