Mói
Mói var kynntur til leiks á Hönnunarmars árið 2014. Hönnuður er Aðalheiður Dóra Þórólfsdóttir, en hún er einnig sölustjóri Zenus. Mói er sófasett sem hentar jafnt heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. Útlitshönnunin er stílhrein og nett, með áherslu á einfaldleika og notagildi.
Sófarnir frá Zenus eru íslensk gæðaframleiðsla þar sem einfaldleiki og hagnýt sjónarmið ráða för. Hönnunin er stílhrein og tímalaus, með sérstaka áherslu á þægindi og notagildi. Grindin er einstaklega sterk og allur frágangur vandaður, þannig að sófarnir standast ýtrustu kröfur um gæði og endingu.
Tillögur að stærðum:
Þriggja sæta: 197 x 84 cm
Tveggja sæta: 141 x 84 cm
Stóll: 85 x 84 cm
Smelltu hér til þess að skoða áklæðin sem í boði eru.

