Hákon
Hákon er stílhreinn og nettur sófi sem hægt er að sérsníða að hverju rými fyrir sig. Hann fæst í mismunandi stærðum og með fjölbreyttu úrvali áklæða, bæði í taui og leðri, svo auðvelt sé að finna útfærslu sem hentar þínum smekk og þörfum.
Sófarnir frá Zenus eru íslensk gæðaframleiðsla þar sem einfaldleiki og hagnýt sjónarmið ráða för. Hönnunin er stílhrein og tímalaus, með sérstaka áherslu á þægindi og notagildi. Grindin er einstaklega sterk og allur frágangur vandaður, þannig að sófarnir standast ýtrustu kröfur um gæði og endingu.
Smelltu hér til þess að skoða áklæðin sem í boði eru.

