Gluggatjöld
Sérsniðin gluggatjöld sem laga sig að þínum þörfum. Zenus býður fjölbreytt úrval gluggatjalda úr hágæða efnum, með stílhreinni hönnun og snjöllum stýringum. Lausnir sem sameina fegurð, þægindi og virkni.

Luxaflex gluggatjöld
Daglega framleiðir Luxaflex þúsundir gluggatjalda í mismunandi stærðum og gerðum. Gluggatjöldin frá Luxaflex eru sérsniðin að þínum þörfum. Við veitum aðstoðum við val á gluggatjöldunum og kerfinu sem hentar best fyrir hverju sinni.
Hangandi gluggatjöld
Hangandi gluggatjöld gefa notalega og hlýlega
stemningu og henta mjög vel með öðrum
tegundum gardína.
Luxaflex® gluggatjöld eru til í
miklu úrvali og úr vinsælum efnum, svo sem hör,
flaueli og myrkvunarefni.
Þú velur hvaða tegund þú vilt og gluggatjöldin
koma sérsniðin og tilbúin í gluggann þinn, með
braut eða stöng, allt eftir þínum óskum.
Efnismikil
gluggatjöld gefa róandi yfirbragð og draga bæði
úr birtu og hljóði og
skapa þar með notalegt andrúmsloft heima.

Powerview®
rafstýring
Með PowerView® rafstýringu færðu fulla stjórn á gardínunum þínum, hvort sem það er með fjarstýringu, snjallsíma eða raddstýringu. Gardínurnar opnast og lokast og skapa rétta birtu og stemningu yfir daginn, án þess að þú þurfir að hugsa út í það.
PowerView® sameinar þægindi og nútímalega tækni á stílhreinan hátt. Lausnin er hljóðlát, nákvæm og hönnuð til að passa fullkomlega inn í rýmið þitt. Hvort sem markmiðið er betri birtustýring, aukið næði eða einfaldlega meiri þægindi, þá aðlagast PowerView® þínum þörfum.

Zenus
lausnir
Hjá Zenus bjóðum við upp á fjölbreyttar sérlausnir sem laga sig að hverju rými og hverri þörf. Við sérsníðum rúllugardínur á staðnum, þar sem áhersla er lögð á gæði, nákvæmni og vandaðan frágang.
Við tökum að okkur óhefðbundin gardínuverkefni og leggjum metnað í að finna lausnir þar sem staðlaðar leiðir duga ekki. Hvort sem um er að ræða sérstök form, krefjandi rými eða einstakar óskir, þá vinnum við lausnamiðað og í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar.
Zenus lausnir snúast um sveigjanleika, fagmennsku og útfærslur sem virka, bæði í útliti og notkun.














